
Grill og góð stemning á Hafinu
Grill og góð stemning á Hafinu Vel heppnaður tengslaviðburður var haldinn á vegum HeimaHafnar á Hafinu í gærkvöldi. Viðburðurinn var ætlaður ungmennum á aldrinum 16-26
HeimaHöfn er heildstætt langtímaverkefni sem tekur á fjölþættum áskorunum sem ungt fólk og landbyggðarsamfélög standa frammi fyrir. Ungt fólk, byggðafesta og búferlaflutningar eru sameiginleg viðfangsefni landsbyggðarsamfélaga en HeimaHöfn er fyrsta heildstæða byggðaþróunarverkefnið hér á landi sem kjarnast um ungt fólk og eflingu byggðar. HeimaHöfn er þróunarverkefni sem miðar að því að styrkja samkeppnishæfni og aðdráttarafl Hornafjarðar sem framtíðarbúsetukost. Með ólíkum verkþáttum er markvisst stuðlað að jákvæðri upplifun og viðhorfi ungmenna til framtíðarinnar í Hornafirði og öflugum tengslum þeirra við samfélagið. Verkefnið felur í sér náið samstarf með ungu fólki, skólum, atvinnulífi, félagasamtökum og öðrum hagaðilum á svæðinu. Lögð er áhersla á að efla og viðhalda tengslum við ungmenni, efla félagslega virkni þeirra og samfélagsþátttöku meðal annars með miðlun upplýsinga um fjölbreytt tækifæri til menntunar, atvinnu og félagsstarfs á svæðinu.
Þátttaka íbúa í verkefninu HeimaHöfn styrkir nærsamfélagið og skapar umhverfi þar sem ungmenni sjá framtíð sína. Með því að skapa sterkari tengsl við heimabyggðina og auka sýnileika tækifæra er byggðafesta efld og ungt fólk getur tekið upplýstar ákvarðanir um framtíðarbúsetu.
HeimaHöfn er samstarfsverkefni Nýheima þekkingarseturs og Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem í sameiningu fjármagna 50% stöðu verkefnastjóra. Fjárlaganefnd hefur styrkt verkefnið um fimm milljónir króna fyrir árið 2025 en í því felst einnig mikil viðurkenning á gildi verkefnisins fyrir samfélagið.
Verkefnastjóri HeimaHafnar er Nejra Mesetovic (heimahofn@nyheimar.is).
Verkefnið HeimaHöfn er þróað fyrir samfélagið í Sveitarfélaginu Hornafirði með það að markmiði að efla tengsl og fjölga tækifærum ungmenna. Ungt fólk er helsti markhópur verkefnisins en öllum er boðið að taka þátt – með ýmsum hætti!

Grill og góð stemning á Hafinu Vel heppnaður tengslaviðburður var haldinn á vegum HeimaHafnar á Hafinu í gærkvöldi. Viðburðurinn var ætlaður ungmennum á aldrinum 16-26

Áframhaldandi þróun og miðlun HeimaHafnar HeimaHöfn hlaut nýverið styrk frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga sem áhersluverkefni í landshlutanum. Styrkurinn verður nýttur til áframhaldandi þróunar á aðferðum og verkþáttum HeimaHafnar og til miðlunar verkefnisins meðal

Nýheimar þekkingarsetur hefur undanfarin ár átt í öflugu samstarfi við Hälsinglands Utbildningsförbund í Svíþjóð og Nordfjordkompaniet í Noregi. Stofnanirnar þrjár standa sameiginlega að verkefninu Future in

Atvinnukynningar HeimaHafnar – fjölbreytt störf kynnt fyrir nemendum Atvinnukynningar á vegum HeimaHafnar fóru fram fimmtudaginn 16. apríl þar sem nemendur í 10. bekk og allir

Þann 9. apríl var haldinn fyrirlestur fyrir allan 10. bekk þar sem fjallað var um kynjaðan vinnumarkað og áhrif staðalmynda á val ungs fólks til

HeimaHöfn stóð í vikunni fyrir valdeflandi viðburði í Nýheimum þar sem sérstakur gestur okkar var Bjartur Guðmundsson. Bjartur hélt hvetjandi erindi fyrir nemendur í Framhaldsskólanum
Handbók HeimaHafnar veitir heildstæða yfirsýn yfir verkefnið – frá upphafi hugmyndar til framkvæmdar og áframhaldandi þróunar. Markmiðið er að miðla reynslu og verkfærum sem önnur sveitarfélög og samfélög geta nýtt og aðlagað að sínum aðstæðum.
Handbókin er lifandi skjal sem verður uppfært samhliða þróun verkefnisins.



























