Hugmyndir ungmenna að nýjum Hafnarhitting
Fjölbreyttar hugmyndir að nýjum Hafnarhittingi komu fram þegar nemendur í 8. og 9. bekk Grunnskóla Hornafjarðar tóku þátt í hugmyndavinnu með HeimaHöfn. Nejra hitti bekkina hvorn fyrir sig og ræddi við nemendur um samfélagsþátttöku og hvernig þau geta haft áhrif á það sem er í boði í nærsamfélaginu. Nemendur veltu meðal annars fyrir sér hvað fær fólk til að mæta á viðburði, hvað getur komið í veg fyrir þátttöku og hvernig hægt er að taka vel á móti öllum.
Hafnarhittingar fyrri ára voru kynntir sem dæmi um viðburði sem leiða íbúa saman og bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu. Nemendur unnu í hópum að hugmyndum fyrir nýjan Hafnarhitting og skoðuðu hvað gæti höfðað til ólíkra aldurshópa. Í 9. bekk unnu nemendur síðan tveir og tveir saman að því að útfæra tillögurnar nánar. Meðal hugmynda voru ýmsar íþróttir, myndlist, föndur, leirvinna, escape room, ratleikur, sketsagerð og ættfræði, svo fátt eitt sé nefnt.
Báðir bekkir tóku virkan þátt í umræðum og sýndu verkefninu mikinn áhuga. Fram komu margar skemmtilegar hugmyndir sem virðast vel framkvæmanlegar og spennandi verður að vinna áfram.
Næsta skref hjá HeimaHöfn er að rýna tillögur nemenda, skoða möguleika á framkvæmd þeirra og nýta þær við skipulagningu Hafnarhittings sem stefnt er á að halda eftir áramót. Þannig fá ungmenni tækifæri til að móta viðburð fyrir samfélagið sitt og sjá hvernig hugmyndir þeirra geta orðið að veruleika.







