Hagnýting HeimaHafnar á öðrum svæðum og markviss miðlun til annarra landsbyggðarsamfélaga er meðal helstu áhersluatriða verkefnisins. Útgáfa handbókar HeimaHafnar er mikilvægur liður í þeirri miðlun.

Handbókinni er ætlað að veita heildstæðar upplýsingar um verkefnið og innsýn í allt ferli þess, frá því að hugmyndin kviknaði og til dagsins í dag. Markmiðið með að deila reynslu okkar er ekki síst að gera öðrum sveitarfélögum kleift að aðlaga einstaka verkþætti eða verkefnið í heild að viðkomandi samfélagi. Áhugasamir lesendur eru hvattir til að máta verkefnið við sitt nærumhverfi!

Handbókin verður uppfærð með reglulegum hætti, samhliða þróun verkefnisins.