Nemendur FAS kynntust frumkvöðlum í heimabyggð
Miðvikudaginn 18. nóvember stóð HeimaHöfn fyrir nýsköpunar- og frumkvöðlakynningum á Heppu fyrir nemendur Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS). Mæting var góð og tóku 28 nemendur þátt í viðburðinum. Markmiðið var að gefa nemendum innsýn í nýsköpun og frumkvöðlastarf í sveitarfélaginu með því að fá frumkvöðla til að segja frá starfsemi sinni og lýsa því hvernig þau hafa þróað hugmyndir sínar og skapað sér tækifæri.
Þrír aðilar kynntu fyrirtæki sín. Gestgjafinn, Þorgrímur Tjörvi á Heppu, hóf dagskrána. Í sama húsi rekur hann veitingastað, brugghús og jöklasýninguna Jöklar Hafnar, sem opnuð var í ágúst. Á sýningunni er áhrifum loftslagsbreytinga á jökla miðlað til gesta með sýndarveruleika.
Alice Sowa, sem býr í Öræfum, sýndi hvernig efni sem annars færi til spillis getur orðið að verðmætum. Í verkefni sínu, Grænulaut, gerir hún áburðarköggla úr ull sem bændur hafa ekki not fyrir og gerir einnig tilraunir til að vinna þráð úr lúpínu.
Haukur Ingi hjá Glacier Adventure lýsti því hvernig fyrirtækið hefur vaxið skref fyrir skref. Fyrirtækið var lítið í upphafi og bauð ferðir á jökul með leiðsögn en síðar bættist rekstur gististaðar við og tilstendur að bjóða einnig námskeið í drónaljósmyndun. Fræðsla um jökla og sjálfbærni hefur fylgt rekstrinum frá byrjun.
Nemendur fengu skýr ráð frá frumkvöðlunum. Hugmynd dugir ekki ein og sér, heldur þarf að útfæra hana og reikna út hvað hún kostar. Fólkið í kringum mann skiptir miklu og það er eðlilegt að sumt gangi ekki upp. Þá er gott nám og fjölbreytt starfsreynsla dýrmætt veganesti, hvert sem leiðin liggur.
Á milli kynninga fengu nemendur hádegismat og tækifæri til að prófa sýndarveruleika (VR), sem vakti mikla lukku. Dagskránni lauk með Kahoot úr efni kynninganna og skoðunarferð um brugghús Heppu.
HeimaHöfn þakkar fyrirlesurum kærlega fyrir að deila reynslu sinni, Heppu fyrir góðar móttökur og nemendum fyrir virka þátttöku.
















