Kynjaður vinnumarkaður til umræðu í 9. bekk
Fimmtudaginn 19. nóvember var Nejra, verkefnastjóri HeimaHafnar, með fræðslu um kynjaðan vinnumarkað fyrir 9. bekk Grunnskóla Hornafjarðar.
Fjallað var um hvað kynjaður vinnumarkaður felur í sér og áhrif staðalmynda á hvernig fólk velur sér nám og störf. Tíminn hófst á þekktri gátu sem reyndist krökkunum nokkuð erfið, þar sem fyrirframgefnar hugmyndir og staðalmyndir trufluðu við úrlausnina.
Nemendur tóku virkan þátt og ræddu meðal annars hvaða störf þau tengja helst við ákveðin kyn. Í lokin fóru þau í leikinn „Hver vinnur við hvað?“. Þar áttu þau að para saman fólk úr sveitarfélaginu og störfin sem það sinnir og náðu þau nánast öllu réttu.
Skilaboðin voru skýr: Val á námi og starfi á að grundvallast á áhuga og styrkleikum hvers og eins, ekki á kyni. Í Sveitarfélaginu Hornafirði eru fjölbreytt tækifæri og það er mikilvægt að ungt fólk sjái fyrirmyndir úr heimabyggð fara sínar eigin leiðir.