Skapandi dagur í Vöruhúsinu
Fimmtudaginn 15. október stóð HeimaHöfn fyrir sköpunardegi með nemendum FAS í Vöruhúsinu. Um 20 nemendur tóku þátt, en markmiðið var að kynna þeim möguleikana sem Vöruhúsið býður upp á og gefa þeim tækifæri til að prófa skapandi vinnu. Viðburðurinn er dæmi um hvernig unnið er að áherslu þessa skólaárs, sem er nýsköpun og frumkvöðlastarf.
Nemendur gátu valið á milli bolagerðar, leirvinnslu og saumaskapar. Flestir völdu bolagerðina og hönnuðu marga flotta og frumlega boli. Við leirstöðina urðu einnig til ýmsir fallegir munir sem eiga eftir að fara í glerjun og brennslu. Þá nýttu nokkrir þátttakendur tækifærið til að sauma sér veski og sérsníða bolina sína.
Starfsfólk Vöruhússins og Ragnheiður Hrafnkelsdóttir sáu um leiðsögn og Hugrún aðstoðaði við leirvinnsluna. Nemendur voru afkastamiklir og hugmyndaríkir og nutu þess að fá tíma og aðstöðu til að útfæra eigin hugmyndir.
Heilt yfir var þetta afar skemmtilegur dagur þar sem sköpunargleðin fékk að njóta sín. HeimaHöfn þakkar leiðbeinendum fyrir aðstoðina og nemendum fyrir góða þátttöku!

















