Markmiðasetning og framtíðarsýn í 10. bekk

Fimmtudaginn 12. nóvember hélt Nejra Mesetovic, verkefnastjóri HeimaHafnar, erindi um markmiðasetningu og framtíðarsýn fyrir nemendur í 10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar. Erindið var framhald af fyrirlestri um samskipti sem bekkurinn fékk í október.

Nejra fór yfir muninn á óskhyggju og markmiði. Óskhyggja segir hvað okkur langar að gera en markmið segir hvað við ætlum að gera og hvenær. Nejra lagði áherslu á að markmið þurfi ekki að vera risavaxin. Þau geta tengst námi, áhugamálum, heilsu, fjármálum eða vinum og fjölskyldu. Það sem skiptir máli er að þau hafi persónulega þýðingu fyrir okkur. Einnig var rætt um skammtíma- og langtímamarkmið og hvernig lítil skref geta fært okkur nær stærri draumum. Þá skoðaði hópurinn hvernig framtíðarsýn getur hjálpað okkur að átta okkur á því hvað við viljum.

Nemendur tóku virkan þátt í umræðum og verkefnum. Hver og einn skrifaði niður eitt markmið fyrir sjálfan sig og tók blaðið með sér heim. Bekkurinn vann einnig saman að því að brjóta stórt markmið niður í minni skref.

Við þökkum 10. bekk kærlega fyrir góðar móttökur og skemmtilegt samtal.