Handbók HeimaHafnar – reynsla og þekking sem nýtist öðrum samfélögum á landsbyggðinni
Í lok síðasta árs gáfu Nýheimar þekkingarsetur út handbók um HeimaHöfn. Þar er farið yfir hugmyndafræði verkefnisins, upphaf, þróun þess og framkvæmd. Markmiðið með útgáfunni er að miðla þeirri þekkingu og reynslu sem hefur skapast í verkefninu og gera öðrum sveitarfélögum og landsbyggðarsamfélögum kleift að nýta hana í eigin byggðaþróunarstarfi.
HeimaHöfn er samstarfsverkefni Nýheima þekkingarseturs og Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem miðar að því að efla tengsl ungs fólks við heimabyggðina, auka samfélagsþátttöku og gera tækifæri til náms, atvinnu og búsetu sýnilegri. Í handbókinni er veitt heildstæð innsýn í verkefnið, allt frá því að hugmyndin kviknaði til þróunar og framkvæmdar einstakra verkþátta. Lögð er áhersla á að miðla bæði aðferðafræði og reynslu af verkefninu þannig að önnur samfélög geti nýtt sér einstaka þætti þess eða aðlagað verkefnið í heild að sínum aðstæðum.
Með því að deila reynslu og þekkingu er vonast til að verkefnið geti nýst sem fyrirmynd og stuðlað að frekari þróun sambærilegra verkefna víðar um landið.
Handbókin er hugsuð sem lifandi skjal sem verður uppfært reglulega samhliða áframhaldandi þróun HeimaHafnar.