Sköpun veitir ró
Kvikmyndagerð hefur heillað Tómas Nóa síðan hann var barn og helstu áhugamál hans eru að skrifa, taka upp og annað sem tengist kvikmyndum. Önnur listform heilla hann einnig, ekki síst ljósmyndun. Tómas Nói tók stúdentinn í Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu og fór þaðan í Kvikmyndaskóla Íslands í Reykjavík þar sem hann lærði leikstjórn og framleiðslu.
Verkefni við kvikmyndagerð í verktöku
Frá útskrift úr Kvikmyndaskólanum hefur Tómas Nói tekið að sér ýmis verkefni innan kvikmyndaiðnaðarins í verktöku.
„Ég er búinn að vera að vinna hjá Sagafilm síðastliðið hálft ár þar sem ég er að vinna við framleiðslu þáttaseríu, leikstýrt af Skara Skrípó – algjörum „legend in the biss.““
Í verkefninu gegndi Tómas Nói hlutverki Key Production Assistant (Key PA).
„Þetta er alveg æðisleg byrjendastaða í bransanum þar sem mitt starf felur í sér að aðstoða framleiðsluna við allskonar hluti. Mikið af því er líkamleg vinna fyrir fólk á settinu, eins og að skutla fólki, hjálpa til að bera hluti og í rauninni að gera það sem mér er sagt á deginum, og það er alltaf að breytast.“
Tómas Nói segir að fjölbreytt starfsreynsla frá uppvaxtarárunum á Höfn hafi komið að góðum notum.
„Að hafa unnið á stöðum eins og Áhaldahúsinu og veitingastöðum gagnaðist mér. Og það sem ég hef kannski getað tekið mest með mér er reynslan mín að hafa verið vaktstjóri á N1.“
Félagsstarf góður skóli
Tómas Nói var virkur í starfi Leikfélags Hornafjarðar. Hann segist þar hafa fengið góðan grunn á sviði leiklistar og lært margt af Stefáni Sturlu og öðrum leikstjórum sem störfuðu með félaginu.
„Ég hugsa oft til Leikfélags Hornafjarðar, þar er samfélag sem ég elska. Ég vildi að ég gæti tekið þetta fólk með mér hvert sem ég fer! Leikfélag Hornafjarðar er með ákveðið aura sem ég finn fyrir þegar ég sé sýningarnar þeirra. Þegar ég kem aftur á Höfn mun ég hiklaust skrá mig í félagið. Þau eru æði og eru að gera alveg geggjaða hluti núna.“
Tómas Nói stundaði einnig fótbolta og frjálsar íþróttir á Höfn. Íþróttastarfið segir hann hafa veitt sér gott veganesti.
„Við vorum svo oft með alveg æðislega þjálfara sem kenndu mér ekki aðeins á íþróttina heldur lífið sjálft, margt sem ég hef lært af allskonar þjálfurum er eitthvað sem ég hef tekið með mér í líf mitt.“
Sækir ekki í kliðinn í miðborginni
Tómas Nói er búsettur í Hafnarfirði ásamt kærustu sinni.
„Það er nokkuð rólegt hérna, mér finnst það fínt, hef lítinn áhuga á að flytja eitthvert niður í bæ þar sem er meira kliður.“
Hann upplifir samt sem áður stundum að vilja komast í enn meiri kyrrð. Ljósmyndun hentar honum vel til að finna frið.
„Ég fer oft út með myndavél að taka myndir af allskonar rólegri hlutum, eins og dýrum og fólki. Mér finnst ég stundum vera að drukkna hérna í Reykjavík þannig að það að geta farið eitthvert afsíðis með myndavél og hugmyndir hentar mér mjög vel.“
Áhugi á ljósmyndun hefur fylgt honum lengi enda, eins og hann orðar það: „svo mörg náttúruundur á Höfn til að ljósmynda“. Hann segist einnig njóta þess enn að hafa lært á gítar í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu.
„Ég lærði á gítar í tónskólanum og stundum þegar mér leiðist tek ég upp gítarinn og glamra aðeins á hann. Ég er ekki góður og vil helst ekki spila fyrir neinn! En ég finn allavega fyrir einhverri ró þegar ég spila.“
Eltist við frelsið
Kvikmyndaverkefni geta skotið upp kollinum með litlum fyrirvara og á ólíklegustu stöðum. Sveigjanleiki er því afar mikilvægur fyrir Tómas Nóa.
„Námið og atvinnan er að taka sem betur fer svolítið yfir líf mitt núna. Það er alveg möst fyrir mig að geta sleppt öllu því sem ég er að gera til að fara í kvikmyndaverkefni. Þannig eltist ég við frelsið, reyni alls staðar að elta drauminn og vera í einhverju sköpunarferli, annað hvort með sjálfum mér eða öðrum.“
Á árinu mun Tómas Nói meðal annars vinna að einu verkefni í Sveitarfélaginu Hornafirði sem honum finnst mjög ánægjulegt, ekki síst vegna þess að stór hluti fjölskyldu hans býr þar. Hann segist oft hugsa heim til að fá innblástur fyrir verkin sín.
