Samheldni og hjálpsemi einkenna samfélagið

Samtal við félaga sem vantaði starfskraft sumarið 2020 varð til þess að Þorsteinn flutti frá Kópavogi í Öræfi. Þorsteinn var þá nýútskrifaður úr tölvunarfræði við Háskóla Íslands en ákvað að slá til og dvelja í Öræfum eitt sumar.

Tímabundið starf vatt upp á sig

Þorsteinn kallar það „algjöra tilviljun“ að hann hafi farið að vinna í Öræfum.

„Félagi minn, sem hefur tengsl og er ættaður úr Öræfum, heyrði í mér vorið 2020 og vildi fá mig með sér að vinna í matarvagninum í Skaftafelli. Ég ákvað að láta vaða, þrátt fyrir að vera nýútskrifaður úr tölvunarfræðinni.“

Sumarið 2020 var þó óvenjulegt og minna varð úr sumarstarfinu en búist hafði verið við.

„Þetta sumar entist stutt, enda covid í hæstu hæðum.“

Næsta vor kviknaði svo sú hugmynd hjá Þorsteini að snúa aftur til starfa í veitingavagninum, jafnvel í heilt ár. Starfið í matarvagninum hlaut þó óvæntan endi í kjölfar illviðris.

„Þá læðist að mér sú hugmynd að reyna hvað ég gæti að vera hér yfir heilt ár. Vagninum var haldið opið og ég sá fram á að vinna þar út veturinn. En í nóvember það árið fauk hann á hliðina og þar af leiðandi missi ég vinnuna.“

Skömmu fyrir tjónið á vagninum hafði Þorsteinn kynnst kærustu sinni sem bjó og starfaði í Öræfum. Hann tók þá ákvörðun um að vera áfram á svæðinu.

„Þá var planið bara að prófa að búa hérna og leita mér að vinnu og sjá hvernig mér myndi líka. Síðan er leið á vorið vorum við komin í rekstur með vinum okkar og hér er ég enn.“

Fjölbreyttari atvinnumarkaður geti leitt til fjölbreyttara samfélags

Atvinnutækifæri eru sannarlega til staðar í Öræfum að mati Þorsteins. Hins vegar mætti atvinnumarkaðurinn vera fjölbreyttari.

„Það er nóg af tækifærum fyrir þá sem vilja stunda eigin rekstur í kringum útivist eða bara að þjónusta ferðafólk á einn eða annan hátt. En eins og ég segi þá er ekki mikið annað í boði. Það vantar kannski meiri fjölbreytileika í atvinnulífið í sveitinni til að fleiri vilji setjast hérna að, en ekki bara koma yfir sumar og fara aftur. Það sem þyrfti að bæta er fjölbreytni í atvinnu, þ.e. að fólk hafi eitthvað til að velja úr til að gera. Að mínu mati myndi það gera það að verkum að samfélagið yrði fjölbreyttara.“

Hin óvænta búseta í Öræfum gæti orðið til lengri tíma

Þorsteinn metur mikils þær góðu móttökur sem hann upplifir að nýir íbúar fái í Öræfum:

Mér finnst samheldni og hjálpsemi lýsa best samfélaginu á svæðinu. Hér eru allir tilbúnir að hjálpa öllum ef eitthvað kemur upp. Það sem þarf að viðhalda er hvernig manni er tekið sem nýjum íbúa. Mín upplifun var sú að fólk gladdist við það að heyra að ég ætlaði mér að búa hérna og voru þau sem ég var í samskiptum við öll af vilja gerð að hjálpa mér að koma mér fyrir. Þeim sem hér vilja búa er tekið opnum örmum.“

Þorsteinn segir upplifun sína af búsetu í Öræfum heilt yfir mjög góða. Hann nefnir sérstaklega gott mannlíf og nálægð við náttúruna.

 „Maður er í mikilli nálægð við náttúruna, en á móti kemur að maður getur verið svolítið einangraður. En á sama tíma og það getur tekið á er það ein ástæða þess að mér líður vel hérna.“

Hann kveðst einfaldlega taka einn dag í einu þegar kemur að ákvörðunum um búsetu.

„Eins og staðan er í dag sé ég fram á að búa hérna til lengri tíma. En rétt eins og ákvörðunin um að flytja hingað getur margt breyst á stuttum tíma, lífið gerist.“