Dýrmætur lærdómur uppvaxtaráranna
Þorkell Óskar gegnir stöðu hótelstjóra við nýopnað hótel í Ölfusi og hefur undanfarið unnið ötullega að því að koma hótelinu á fót. Útsýnið frá hótelinu, yfir hafið og svarta ströndina, segir hann óneitanlega minna sig á heimahagana.
Starfstækifæri ráða miklu um búsetu
Nokkur ár eru síðan Þorkell Óskar flutti frá Höfn. Tengslin við svæðið eru enn sterk, einkum í gegnum fjölskyldu og vini.
„Ég er fæddur og uppalinn í Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem stór hluti fjölskyldu minnar býr enn í dag. Ég lauk bæði grunn- og framhaldsskólagöngu á staðnum en flutti síðan til Reykjavíkur og síðar til Sviss í háskólanám. Samhliða námi starfaði ég í ferðaþjónustu. Val á búsetu hefur fyrst og fremst ráðist af þeim starfstækifærum sem hafa staðið mér til boða. Undanfarin ár hafa þau að mestu verið bundin við höfuðborgarsvæðið, sem hefur haft afgerandi áhrif á hvar ég hef kosið að búa, þrátt fyrir sterk tengsl við heimahagana.“
Fyrir nokkrum árum bauðst áhugavert atvinnutækifæri á heimaslóðum sem varð til þess að Þorkell Óskar flutti tímabundið til baka.
„Sumarið 2020 sneri ég aftur heim þar sem ég tók þátt í sérhæfðri áfangastaðamarkaðssetningu fyrir Visit Vatnajökull á vegum sveitarfélagsins og vann að verkefnum tengdum ferðaþjónustu á svæðinu.“
Starfsvettvangurinn er jafnframt áhugamál
Atvinna hefur löngum verið fyrirferðarmikil í lífi Þorkels Óskars. Hann hefur einnig stundað íþróttir frá bernsku og telur helstu áhugamálin því ekki hafa tekið miklum breytingum í gegnum árin.
„Á uppvaxtarárum mínum stundaði ég einkum sund og blak og naut þess að verja tíma með æskuvinum. Í dag eru áhugamálin að hluta til svipuð. Ég legg rækt við líkamsrækt og reyni að ferðast þegar færi gefst. Ég hóf snemma að vinna mikið og hef haldið því áfram. Ég tel mig því afar heppinn að starfið mitt sé jafnframt mitt helsta áhugamál.“
Það eru áhugaverðir tímar í vinnunni hjá Þorkeli Óskari um þessar mundir. Hótelið sem hann stýrir opnaði fyrir skemmstu (í mars 2026) og segist hann hlakka sérstaklega til að taka á móti Hornfirðingum sem eiga leið hjá.
Býr að gildum úr nánu og öflugu samfélagi
Að mati Þorkels Óskars veittu uppvaxtarárin í Sveitarfélaginu Hornafirði dýrmæta reynslu og margvíslegan lærdóm sem hafa mótað hann sem einstakling í lífi og starfi.
„Hugurinn leitar reglulega heim. Ég sæki þar í lærdóm uppvaxtaráranna og fyrstu skref mín í atvinnulífinu sem hafa reynst mér dýrmæt vegferð og nýtast mér enn í dag. Ég ber með mér sterka samfélagskennd, virðingu fyrir náttúrunni og þá lífsreynslu sem fylgir því að alast upp í nánu og öflugu samfélagi þar sem vinnusemi og seigla eru í hávegum höfð.“