Að viðhalda tengingu við heimabæinn – og kynnast honum aftur
Að loknu námi í FAS hélt Sædís Harpa til Reykjavíkur þar sem hún lauk BA í tómstunda- og félagsmálafræði og meistaragráðu í kennslu list- og verkgreina með áherslu á sjónlistir. Hún er enn búsett á höfuðborgarsvæðinu en talar þó alltaf um að „fara heim“ þegar hún heimsækir æskustöðarnar í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Togar í báðar áttir
Sædís Harpa hafði alltaf séð fyrir sér að flytja aftur heim að námi loknu en áður en hún vissi af hafði hún komið sér fyrir á höfuðborgarsvæðinu. Tengslin við heimabyggðina eru enn sterk, þar búa foreldrar hennar og margir ættingjar og vinir. Einnig hefur listin opnað á enn frekari tengsl heim.
„Síðustu tvö ár hef ég fengið mikla tilhneigingu til að leita heim og hef haldið tvær listasýningar og verið með vinnustofu í Stúkusalnum. Ég hef fengið dýrmæt tækifæri til að deila listinni minni með heimamönnum.“
Listin tengir Sædísi Hörpu þó einnig sterkt við höfuðborgarsvæðið.
„Í bænum er ég líka með dýrmætt tengslanet þegar kemur að listinni og þar finnst mér ég vera nær listrænum viðburðum, sýningum og samkomum sem ég leita mikið í. Þannig að það er óhætt að segja að það togar í mig í báðar áttir.“
Sædís Harpa segist finna að tengslanetið á höfuðborgarsvæðinu vex með lengri búsetu þar. Á sama tíma finnur hún að tengslanetið á Höfn minnkar.
Vörumerki sett á laggirnar
Sædís Harpa vinnur sjálfstætt að listsköpun í stúdíóinu sínu og samhliða kennir hún myndlist á unglingastigi. Að auki sinnir hún verkefnum tengdum eigin vörumerki.
„Árið 2025 mótaði ég fyrsta vörumerkið mitt Ljóð og Lag ásamt tveimur öðrum konum og í lok sama árs gáfum við út Ljóðakistuna þar sem ég er myndhöfundur og hönnuður.“
Þessi veruleiki kemur Sædísi Hörpu sjálfri á vissan hátt á óvart, eða eins og hún orðar það svo skemmtilega:
„Ef ég hefði verið spurð þegar ég var yngri hvað ég væri að gera núna þá hefði ég aldrei trúað því að ég myndi starfa sem listakona með eigið fyrirtæki og hvað þá sem kennari í grunnskóla.“
Það er ekki síst vinna að vörumerkinu sem hefur áhrif á búsetu Sædísar Hörpu.
„Teymið í kringum Ljóð og Lag er staðsett á höfuðborgarsvæðinu svo að það hefur mikil áhrif á það hvar ég er búsett.“
Sækir innblástur til æskustöðvanna
Sterk tengsl heim eru Sædísi Hörpu mikilvæg.
„Ég fer þangað þegar mig vantar innblástur, vera með fjölskyldunni minni og komast nær náttúrunni.“
Á heimaslóðunum gefst henni einnig færi á að komast í hægari takt.
„Þegar ég kem í heimsókn finnst mér mikilvægt að labba og njóta þess að vera ekki í kappi við tímann sem ég upplifi allt of oft í bænum.“
Hún leggur áherslu á að leyfa tengingunni við heimahagana að þróast áfram.
„Það er mjög dýrmætt að flytja í burtu og sjá bæinn í nýju ljósi og fá að kynnast honum aftur sem fullorðinn einstaklingur. Ég finn hversu mikilvægt það er að viðhalda tengingu við heimabæinn og kynnast honum aftur með nýjum augum.“
Nándin í samfélaginu er dýrmætt veganesti
Sædís Harpa segist búa að þeirri samheldni og nánd sem einkenndi uppvaxtarárin.
„Helstu mótandi þættir í mínu lífi eru að alast upp í svona góðum tengslum við fjölskylduna mína og ættingja. Að eiga ömmu í næstu götu, ættingja í sama bekk og magnað stuðningsnet hefur verið mjög dýrmætt veganesti fyrir mig.“
Skólagangan á Höfn er Sædísi Hörpu ofarlega í huga. Eftir að hún sjálf hóf störf við kennslu hefur sýn hennar á skólastarf tekið nokkrum breytingum.
„Framhaldsskólinn á Höfn var frábær undirbúningur fyrir meira nám á háskólastigi en í FAS fékk ég að máta mig við alls konar áfanga ásamt því að fá mikinn stuðning frá mörgum kennurum. Ég tek eftir því mun betur eftir að ég fór sjálf í kennaranám hversu einstakt það er að hafa framhaldsskóla í heimabyggð.“
