Alltaf stutt í ævintýrin

Lovísa er uppalin í Kópavogi og kom upphaflega til Sveitarfélagsins Hornafjarðar til að sinna landvörslu á Breiðamerkursandi. Hún kunni strax vel við sig og er nú búsett í Öræfum með kærasta sínum og starfar í Lambhaga, leikskólanum í Hofgarði.

Náttúrubarn

Lovísa er mikið náttúrubarn og skráði sig þess vegna á landvarðanámskeið vorið 2023. Að námskeiðinu loknu vonaðist Lovísa til að fá vinnu við landvörslu á hálendinu. Raunin varð hins vegar sú að henni var boðin staða á Breiðamerkursandi sem henni þótti ekki jafn spennandi. Hún ákvað þó að taka starfinu en ráðgerði að vera aðeins á svæðinu yfir sumarið, vetrinum ætlaði hún að verja í borginni. Framhaldið kom henni því nokkuð á óvart.   

„Strax eftir fyrstu vakt var ekki aftur snúið, mér leið eins og ég væri komin heim. Ég kynntist svo kærasta mínum þetta sumar og ákvað því að halda áfram að starfa þar yfir veturinn. Sumarið eftir fluttum við svo í Öræfin. Þegar maður hefur fengið að búa á stað eins og þessum þá er einhvern veginn erfitt að hugsa sér að vera aftur umkringd endalausu malbiki og þéttingu b(hr)yggðar.“

Lovísa segir íbúa Öræfa hafa tekið þeim opnum örmum. Samfélagið hefur mikil áhrif á að þau vilja vera áfram á svæðinu.

Draumur að búa í Öræfum

Í sveitinni upplifir Lovísa mikið frelsi og hana hafði alltaf grunað að hún myndi una sér betur í minna samfélagi heldur en stærra.

„Að búa í Öræfum er þvílíkur draumur, hér lifir maður frjáls og í faðmi náttúrunnar – langt frá stressinu og mannfjöldanum í borginni. Hér er alltaf svo stutt í ævintýrin. Ég verð svo auðvitað að tala um veðrið, en eins snælduvitlaust og óþolandi og það getur verið hér að þá er það svo ótrúlega áhugavert og magnað að upplifa kraftinn í því.“

Lovísa deilir með okkur reynslu sem hafði mikil áhrif á viðhorf hennar til fólksins á svæðinu.

„Ég varð vitni af bílveltu á svæðinu rétt eftir að við vorum nýflutt. Ég hringdi í neyðarlínuna og eftir skamma stund var hálf sveitin mætt sem viðbragðsaðilar. Að sjá þessi kunnuglegu andlit bregðast svona skjótt og örugglega við var svona eins og að fá góð knús í þessum streituvaldandi aðstæðum. Sem betur fer fór þetta vel og manneskjan í bílnum slapp ómeidd. En það sem sat eftir hjá mér var upplifunin af samheldninni í samfélaginu. Það er ómetanlegt að búa á stað þar sem allir mæta boðnir og búnir þegar eitthvað bjátar á.“

Telur ungt fólk sækja í landsbyggðina

Í Öræfum býr margt ungt fólk og alltaf er nóg við að vera. Aðstæður eru þó með þeim hætti að „fólk þarf auðvitað líka að vera svolítið hugmyndaríkt með afþreyingu og viðburði“.

Þrátt fyrir mjög jákvæða reynslu af búsetu á svæðinu eru ákveðin atriði sem Lovísa telur mikilvægt að huga að. 

„Það kom mér á óvart hvað svæðið er einangrað og innviðasnautt miðað við að vera staðsett við þjóðveginn og með íbúafjölda á við minni þorp landsins. Það hefur að sjálfsögðu gert lífið töluvert erfiðara. Ég áttaði mig hins vegar á því mjög snemma að það væri alveg þess virði að láta sig hafa það, en auðvitað með von um að úr þessu verði bætt.“

Að mati Lovísu er brýnt að bæta innviði á svæðinu og „byggja upp sveitina á ábyrgan hátt, ekki bara einblína á uppbyggingu ferðaþjónustu“. Hún segist sjá merki um að ungt fólk horfi í auknum mæli til búsetu í dreifðari byggðum og svæðin þurfi að þróast í takt við það. 

„Það er orðið áberandi að ungt fólk er farið að sækja í líf á landsbyggðinni og þá þarf að gera ráðstafanir í takt við það. Öræfin eru engin undantekning þar á og bíðum við núna spennt eftir fjölnota frístundahúsi sem verður frábær búbót fyrir alla íbúa sveitarinnar. Þannig að framtíðin er bara björt á landsbyggðinni.“