
HeimaHöfn
HeimaHöfn er þróunarverkefni sem miðar að því að styrkja samkeppnishæfni og aðdráttarafl Hornafjarðar sem framtíðarbúsetukosts. Verkefnið felur í sér náið samstarf með ungu fólki, fulltrúum úr atvinnulífinu, skólum og öðrum hagsmunaaðilum á svæðinu. Unnið verður að miðlun upplýsinga um fjölbreytt tækifæri til menntunar og atvinnu á svæðinu. Auk þess verður unnið að því að efla og viðhalda tengslum við ungmenni á staðnum, efla félagslega virkni þeirra og samfélagsþátttöku. Einnig verður áhersla lögð á að viðhalda tengslum við ungmenni sem fara annað til að afla sér frekari menntunar.