Á dögunum fór fram strákaviðburður í Fenri Elite fyrir nemendur í 10. bekk og FAS á vegum HeimaHafnar. Mæting var fín og stemningin jákvæð allan tímann.
Viðburðurinn var leiddur af Erlendi Rafnkeli Svanssyni (Ella), eiganda og þjálfara hjá Fenrir. Hann hóf dagskrána á fræðandi og hnitmiðaðri kynningu þar sem hann fór yfir mikilvægi réttrar tækni, samhæfingu í æfingum og þess að byggja styrk á traustum grunni. Strákarnir tóku virkan þátt og sýndu bæði áhuga og einbeitingu.
Að kynningu lokinni var farið í verklegan hluta þar sem unnið var með grunnæfingar og lögð áhersla á öryggi og góða líkamsbeitingu. Í lokin fengu þátttakendur að taka þátt í skemmtilegri æfingu sem allir gátu aðlagað eftir eigin getu.
Strákarnir stóðu sig vel og fóru sáttir heim eftir líflegan og uppbyggilegan viðburð.
Við þökkum Fenri Elite og Ella kærlega fyrir samstarfið og hlökkum til frekara samstarfs í framtíðinni.









