Síðastliðinn mánudag fór fram stelpuviðburður á vegum HeimaHafnar fyrir nemendur í 10. bekk og FAS. Mæting var mjög góð og kosý stemmning frá upphafi til enda.

Lukka Óðins, förðunarfræðingur og sérfræðingur í markaðsmálum hjá Bpro, leiddi kvöldið og fór yfir grunnatriði í húðumhirðu og einfaldri dagförðun. Hún sýndi hvernig hægt er að byggja létta förðun upp þannig að hún henti við ólík tilefni, auk þess að deila gagnlegum ráðum sem nýtast við förðun. Þá fengu þátttakendur einnig að sjá einfalda og fljótlega hárgreiðslu sem auðvelt er að framkvæma heima.

Stelpurnar tóku virkan þátt, spurðu fjölda spurninga og sýndu mikinn áhuga á efninu. Viðbrögðin voru afar jákvæð og lýstu stelpurnar ánægju með viðburðinn. Margar þeirra sögðust hafa lært mikið og höfðu áhuga á fleiri svipuðum viðburðum.

HeimaHöfn þakkar Lukku og öllum stelpunum sem tóku þátt kærlega fyrir fræðandi og skemmtilegt kvöld.