Í samstarfi við Fenrir Elite stendur HeimaHöfn fyrir sérstökum strákaviðburði fyrir nemendur í 10. bekk og FAS, þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, líkamsvitund og uppbyggjandi nálgun að styrktarþjálfun.

Viðburðurinn fer fram í Fenrir Elite og verður leiddur af Ella, eiganda og þjálfara hjá Fenrir Elite. Markmiðið er að kynna þátttakendum grunnatriði í þjálfun á aðgengilegan hátt, með áherslu á rétta tækni, öryggi og jákvæða upplifun.

Dagskráin samanstendur af stuttu spjalli, kennslu í grunn tækni og æfingu í lokin sem allir geta skalað eftir eigin getu. Viðburðurinn er hugsaður sem hvatning til hreyfingar og sjálfstrausts, fremur en keppni eða frammistöðumælingar.

Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og er viðburðurinn opinn öllum strákum í markhópnum sem hafa áhuga á að prófa, læra og taka þátt í jákvæðu og styðjandi umhverfi.

Skráning fer fram í gegnum form hér að neðan: