Orð hafa áhrif – fræðsla um samskipti í 10. bekk

Á dögunum heimsótti HeimaHöfn nemendur í 10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar með fræðslu um Samskipti til árangurs. Markmiðið var að vekja nemendur til umhugsunar um mikilvægi góðra samskipta, framkomu okkar við aðra  og hvaða áhrif orð okkar og hegðun geta haft.

Í fræðslunni var meðal annars fjallað um hvað einkennir góð og slæm samskipti. Nemendur voru hvattir til að velta fyrir sér hvers konar framkomu þeir vilja sjálfir mæta og hvernig þeir geta sýnt öðrum virðingu. Rætt var um mikilvægi kurteisi, jákvæðni, hreinskilni og hvetjandi samskipta en einnig um birtingarmyndir neikvæðra samskipta  í orðum, svipbrigðum og líkamstjáningu.

Lögð var áhersla á að ekki skiptir aðeins máli hvað við segjum, heldur líka hvernig við segjum það. Með dæmum úr daglegu lífi var sýnt fram á hvernig hægt er að koma sömu skilaboðum á framfæri á ólíkan hátt og hvaða áhrif orðaval og framsetning geta haft á viðbrögð annarra.

Samskipti á samfélagsmiðlum og í skilaboðum voru einnig til umræðu. Í skriflegum samskiptum vantar svipbrigði, raddblæ og líkamstjáningu sem hjálpa okkur að skilja hvert annað. Þetta getur auðveldlega leitt til misskilnings og rangra ályktana.

Nemendur fylgdust vel með og tóku virkan þátt í umræðum um þessi málefni. Í lok fræðslunnar var stutt verkefni lagt fyrir þar sem nemendur fengu tækifæri til að skrifa jákvæð skilaboð um hvert annað á blöð. Verkefnið var skemmtileg leið til að ljúka fræðslunni og minna á hversu mikil áhrif einföld, falleg orð geta haft.

Góð samskipti eru mikilvægur hluti af daglegu lífi, hvort sem er í skólanum, vinahópnum, á samfélagsmiðlum eða síðar á vinnumarkaði. Með fræðslu og umræðum af þessu tagi vill HeimaHöfn hvetja ungmenni til að vera meðvituð um eigin samskipti og mikilvægi þess að sýna hvert öðru virðingu og jákvæðni.