Við þökkum öllum sem hafa tekið þátt í HeimaHöfn, mætt á viðburði, deilt hugmyndum, tekið samtalið og sýnt verkefninu áhuga. Á öðru starfsári HeimaHafnar var áfram unnið að því að efla tengsl ungs fólks við samfélagið, fjölga tækifærum til þátttöku og vekja athygli á þeim möguleikum sem eru til staðar í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Á skólaárinu voru haldnir fjölbreyttir viðburðir fyrir nemendur í 10. bekk og FAS. Sem dæmi má nefna fræðsluviðburði þar sem fjallað var um jákvæð samskipti, kynjaðan vinnumarkað, sjálfstraust og hugarfar. Einnig var boðið upp á stelpuviðburð með Lukku Óðins, strákaviðburð í Fenri Elite og atvinnukynningar þar sem nemendur fengu innsýn í fjölbreytt störf í samfélaginu.
Við tökum með okkur dýrmæta reynslu, góðar hugmyndir og efnivið úr samtölum við ungt fólk, skóla, atvinnulíf og samstarfsaðila, inn í næsta starfsár HeimaHafnar.
Þema næsta skólaárs: Nýsköpun og frumkvöðlastarf
Nú fer skólaárið að hefjast og mun HeimaHöfn í starfi sínu með ungmennum leggja áherslu á nýsköpun og frumkvöðlastarf. Með þeirri áherslu viljum við styðja ungt fólk í að þróa eigin hugmyndir, koma auga á tækifæri og sjá hvernig hægt er að skapa ný verkefni, viðburði, vörur, þjónustu eða jafnvel störf í eigin samfélagi.