20260909_103745

Nýsköpunarvetur HeimaHafnar hafinn​

HeimaHöfn hélt fyrsta viðburð annarinnar með nemendum FAS og 10. bekkjar Grunnskóla Hornafjarðar. Viðburðurinn markaði upphafið að starfi vetrarins, en áhersla verður á nýsköpun og frumkvöðlastarf.

Arnar Sigurðsson, sem starfar hjá samfélagslegu tilraunastofunni Austan mána, hélt fræðandi og gagnvirkan fyrirlestur fyrir nemendur. Hann fjallaði meðal annars um það hvað nýsköpun er og hvernig hugmyndir verða til. Arnar lagði áherslu á mikilvægi þess að þora að prófa sig áfram þótt mörgum finnist hugmyndin fáránleg í fyrstu. Hann ítrekaði að það væri í lagi að mistakast.

Nemendur unnu einnig verkefni í hópum þar sem þau greindu styrkleika og veikleika Hornafjarðar. Meðal styrkleika nefndu þau gott samfélag, öryggi, náttúrufegurð og fjölbreytt atvinnutækifæri fyrir ungmenni. Meðal áskorana voru fjarlægðir, félagslíf og takmarkað úrval verslana og veitingastaða. Í framhaldinu veltu þau fyrir sér hvernig hægt væri að nýta veikleikana sem tækifæri og uppsprettu nýrra hugmynda og nýsköpunar í samfélaginu.

Við þökkum Arnari kærlega fyrir góðan og áhugaverðan fyrirlestur og nemendum fyrir virka þátttöku.