Landbúnaðardagur HeimaHafnar

Um 30 nemendur Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu fóru í sveitaferð á vegum HeimaHafnar miðvikudaginn 30. september. Markmið ferðarinnar var að kynna nemendum landbúnað sem mikilvægan hluta atvinnulífs Hornafjarðar og gefa þeim innsýn í þau fjölbreyttu störf og tækifæri sem tengjast greininni.

Fyrri viðkomustaður dagsins var Kálfafell í Suðursveit þar sem Aðalbjörg tók á móti hópnum. Nemendur fengu að heyra hvernig sauðfjárbúskapur gengur fyrir sig og hvernig vinnan breytist eftir árstíðum, auk þess að fá innsýn í daglegt líf sauðfjárbænda.

Seinni áfangastaður ferðarinnar var Flatey á Mýrum. Birgir tók á móti hópnum og fræddi nemendur um starfsemina á bænum, þar á meðal mjólkurframleiðslu, kjötframleiðslu og kornrækt. Nemendur fengu að fara inn í fjósið og komast í návígi við nautgripina. Kálfarnir vöktu að sjálfsögðu mikla lukku og margir nemendur nýttu tækifærið til að klappa þeim.

Á báðum bæjum var rætt um tækniþróun í landbúnaði og hvernig greinin hefur breyst með nýjum búnaði og aðferðum. Nemendur sýndu áhuga, tóku þátt og spurðu spurninga.

Landbúnaðardagurinn er hluti af starfi HeimaHafnar við að kynna ungu fólki atvinnulíf Hornafjarðar og þau fjölbreyttu tækifæri sem eru til staðar í heimabyggðinni.