Kynningarfundir í 9. og 10. bekk
Nú í byrjun skólaannar voru haldnir tveir kynningarfundir fyrir nemendur í 9. og 10. Bekk í Grunnskóla Hornafjarðar á vegum HeimaHafnar. Þá fengu þau kynningu á verkefninu HeimaHöfn, hugmyndinni á bakvið það og þeim viðburðum sem haldnir hafa verið á vegum HeimaHafnar, bæði í fyrra og nú í haust. Báðir fundirnir tókust afar vel þar sem nemendur voru áhugasamir um verkefnið, lærðu margt nýtt og höfðu margt til málanna að leggja. Á vorönn munum við heimsækja bekkina aftur með frekara fræðsluefni og er þetta liður í því að verkefnið nái til fleiri nemenda í grunnskólanum.