HeimaHöfn kynnt fyrir grunnskólanemendum
Á undanförnum vikum hafa Nejra og Hugrún hitt nemendur í 7., 8. og 9. bekk Grunnskóla Hornafjarðar og kynnt HeimaHöfn fyrir þeim. Kynningar af þessum toga hafa verið fastur liður í starfi HeimaHafnar við upphaf hvers skólaárs en hafa til þessa þó einungis verið haldnar fyrir nemendur í 10. bekk. Markmið kynninganna er að gefa nemendum innsýn í HeimaHöfn og starfið framundan á vegum verkefnisins. Kynningarnar eru einnig mikilvægur vettvangur til tengslamyndunar og upphafs samtals við nemendur.
Nemendur fengu að heyra um áherslur og markmið verkefnisins og leitast var við að vekja þau til umhugsunar um nærsamfélagið og framtíð sína. Fyrstu skref voru tekin í átt að vinnu á sviði nýsköpunar og frumkvöðlastarfs, samfélagsþátttöku og náms og atvinnu. Minnt var á mikilvægi þess að vera hvetjandi og uppbyggileg hvert við annað.
Á kynningarfundunum tóku nemendur þátt í umræðum og unnu að einstaklings- og hópverkefnum tengdum samfélaginu. Í einstaklingsverkefninu skoðuðu nemendurnir hvað þeim finnst gott við Hornafjörð, hvað mætti bæta og hvað vantar í samfélagið. Í hópverkefninu settu nemendur fram hugmyndir út frá fjórum þemum: Þrykkjunni, útivistarsvæðum, viðburðum og skólanum. Hver hópur fékk nokkrar mínútur til að skrifa niður eins margar hugmyndir og mögulegt var. Síðan skiptust hóparnir á blöðum þar til allir höfðu unnið með öll þemun. Bæði verkefnin gáfu nemendunum tækifæri til að segja sína skoðun, deila hugmyndum og taka þátt í að móta framtíð Hornafjarðar.
Nýheimar þekkingarsetur þakkar nemendum kærlega fyrir samvinnuna. Kynningarfundirnir skiluðu góðum og gagnlegum niðurstöðum sem teknar verða saman og unnið með áfram. Setrið mun koma ábendingum frá nemendum til viðeigandi aðila.
Víkkun markhóps HeimaHafnar er liður í áhersluverkefni styrktu af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.











