20260623_182636

Grill og góð stemning á Hafinu

Vel heppnaður tengslaviðburður var haldinn á vegum HeimaHafnar á Hafinu í gærkvöldi.  Viðburðurinn var ætlaður ungmennum á aldrinum 16-26 ára og var markmið hans að skapa tækifæri fyrir ungt fólk til afþreyingar, samveru og tengslamyndunar.  HeimaHöfn bauð í grillaða borgara, gos og brakandi gott popp handa ungmennum sem mættu, spiluðu ýmis spil og áttu gott spjall um lífið og tilveruna. Um 30 ungmenni mættu á viðburðinn, mikil ánægja var með framtakið og ljóst að slíkir viðburðir skapa mikilvægt tækifæri fyrir ungt fólk til að hittast.