Fyrirlestur um samskipti fyrir 10. bekk
Fimmtudaginn 5. febrúar hélt Hugrún Harpa forstöðumaður Nýheima þekkingarseturs fyrirlestur fyrir nemendur í 10. bekk Grunnskóli Hornafjarðar. Erindið er hluti af fræðslu og valdeflingu HeimaHafnar meðal ungmenna. Þar sem markmiðið er að efla félagsfærni, sjálfsmynd og virkni ungs fólks, auk þess að styðja við jákvæða samfélagsþróun.
Að þessu sinni var umfjöllunarefnið árangursrík samskipti. Meðal annars var rætt um hvað einkennir gott samfélag, grunninn að góðum samskiptum, mikilvægi tjáningar og hlustunar, ásamt áhrifum líkamstjáningar og orðavals. Hugrún lagði áherslu á virðingu, umburðarlyndi, traust og mannlega nálgun í samskiptum, og hvatti nemendur til að vera meðvitaðir um eigið hlutverk í samskiptum – bæði gagnvart jafningjum og öðrum í samfélaginu.
Eins og ávallt var ánægjulegt að hitta ungmennin okkar sem voru til fyrirmyndar. Sýndu þau efninu áhuga, spurðu mikilvægra spurninga og tóku virkan þátt. Slík þátttaka er mikilvægur liður í valdeflingu ungmenna og styrkir færni þeirra til samskipta og þátttöku í samfélaginu. Við þökkum nemendum í 10. bekk og kennurum þeirra fyrir móttökurnar.