Þann 9. apríl var haldinn fyrirlestur fyrir allan 10. bekk þar sem fjallað var um kynjaðan vinnumarkað og áhrif staðalmynda á val ungs fólks til náms og starfa. Fyrirlesturinn er liður í verkefninu HeimaHöfn sem miðar að því að efla tengsl ungs fólks við samfélagið og auka meðvitund um framtíðarmöguleika þeirra.

Í erindinu var farið yfir hvernig vinnumarkaðurinn getur verið kynjaður, hvernig staðalmyndir mótast og hvaðan þær koma, sem og hvaða áhrif þær geta haft á það hvað ungmenni telja sig geta eða vilja gera. Sérstök áhersla var lögð á að hjálpa nemendum að átta sig á því að val þeirra mótast ekki eingöngu út frá þeirra áhuga, heldur getur það einnig mótast af umhverfi, væntingum og félagslegum áhrifum.

Markmið fyrirlestursins var að auka meðvitund nemenda um þessa þætti og hvetja þau til að taka upplýstar ákvarðanir um eigið nám og starf í framtíðinni.

Fyrirlesturinn tókst vel og nemendur fylgdust vel með og tóku þátt í umræðum um efnið.