Dagskrá vorsins í HeimaHöfn – kynning fyrir nemendur í FAS

Nýverið heimsótti Nejra Mesetovic, verkefnastjóri HeimaHafnar, nemendur Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu þar sem dagskrá vorsins var kynnt. Farið var yfir áherslur HeimaHafnar og þau verkefni og viðburði sem eru framundan. Verkefnið leggur ríka áherslu á virka þátttöku ungmenna og tækifæri þeirra til að hafa áhrif á bæði innihald og framkvæmd verkefna. Heimsókn sem þessi er því mikilvægur liður í þróun verkefnisins. Nemendur voru hvattir til að miðla sínum hugmyndum um viðfangsefni og viðburði.

Á meðal viðburða sem kynntir voru eru stelpu- og strákaviðburðir sem haldnir verða í febrúar utan skólatíma. Hugmynd um kynjaskipta viðburði kom einmitt frá nemendum sjálfum á fundi verkefnisins í haust. Í mars kemur Bjartur Guðmundsson leikari til okkar en hann starfar einnig sem fyrirlesari og frammistöðuþjálfari/markþjálfi og þerapisti. Bjartur verður með erindi fyrir nemendur FAS og 10. bekk grunnskólans þar sem áhersla verður lögð á sjálfstraust, trú á eigin áhrifamátt og þá sýn að það að vera héðan sé styrkur fremur en hindrun. Viðburðurinn miðar að því að efla jákvæða sjálfsmynd og framtíðarsýn ungmenna.

Í apríl ætlum við að standa fyrir kajakferð og verður nemendum boðið að taka virkan þátt í undirbúningi viðburðarins með verkefnastjóra. Með því viljum við veita þeim innsýn í skipulag viðburða og raunverulega reynslu af þátttöku í verkefni frá upphafi til enda. Sama mánuð verður haldin atvinnukynning fyrir nemendur í 10. bekk og FAS. Viðburðurinn miðar að því að kynna fjölbreytt atvinnulíf svæðisins og skapa tengingu milli ungmenna og atvinnulífs.

Í maí verður boðið upp á nokkurs konar “Hraðstefnumót” við félagasamtök. Markmiðið er að kynna það fjölbreytta félagsstarf sem er í boði á svæðinu og hvetja ungmenni til þátttöku í samfélaginu. Á vormánuðum fara jafnframt fram lokafundir með nemendum í 10. bekk og útskriftarhópi FAS.

Við þökkum nemendum FAS fyrir móttökurnar og hlökkum til vorsins með ungmennum sveitarfélagsins.