20260310_104801

HeimaHöfn stóð í vikunni fyrir valdeflandi viðburði í Nýheimum þar sem sérstakur gestur okkar var Bjartur Guðmundsson. Bjartur hélt hvetjandi erindi fyrir nemendur í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) og nemendur í 10. Bekk Grunnskóla Hornafjarðar. Um var að ræða þriggja tíma námskeið þar sem áhersla var lögð á sjálfstraust, viðhorf og það hvernig við getum styrkt trú okkar á eigin getu.

Bjartur fjallaði meðal annars um mikilvægi þekkingar, viðhorfa, trúar og tilfinningalegs ástands þegar kemur að því að ná þeim árangri, ánægju og frammistöðu sem við sækjumst eftir. Hann ræddi einnig við nemendur um leiðtogahæfni og hvernig hægt er að rækta uppbyggilegt hugarfar sem styður okkur í námi, starfi og lífi. Markmiðið var að vekja nemendur til umhugsunar um mátt tilfinninga og hugarfars, og hvernig tilfinningar hafa áhrif á upplifanir okkar, ákvarðanir og athafnir og þar með einnig á hamingju og árangur í lífinu. Nemendur fengu einnig innsýn í hvernig hægt er að stýra eigin hugarástandi betur, þannig að það vinni með okkur í stað þess að sveiflast tilviljanakennt í takt við ytri aðstæður.

Erindið var ekki aðeins fræðandi heldur einnig afar líflegt og skemmtilegt. Bjartur lagði mikla áherslu á þátttöku nemenda og skapaði kraftmikla stemningu þar sem nemendur voru hvattir til að taka virkan þátt. Með ýmsum æfingum og verkefnum, þar sem meðal annars var dansað, hoppað og trallað saman, náði hann fljótt að brjóta ísinn og koma hópnum í góðan gír.

Í hádegishléi var boðið uppá grillaða hamborgara og gafst þá tækifæri til að ræða sín á milli upplifun af æfingum og verkefnum námskeiðsins. Nemendur höfðu sumir á orði að þetta hefði á köflum verið „það steiktasta og jafnvel óþægilegasta sem þau hefðu gert“. Þau sögðu þó einnig að þetta hefði verið mjög skemmtilegt og þau lært mikið af upplifuninni enda hefðu þau þurft að fara talsvert út fyrir þægindarammann. Viðtökurnar voru afar góðar og ljóst að erindið vakti bæði hlátur, hugrekki og umhugsun meðal nemenda. Við þökkum Bjarti kærlega fyrir komuna og ungmennum okkar fyrir frábæra samveru.