Atvinnukynningar HeimaHafnar -  fjölbreytt störf kynnt fyrir nemendum

Atvinnukynningar á vegum HeimaHafnar fóru fram fimmtudaginn 16. apríl þar sem nemendur í 10. bekk og allir nemendur í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) fengu tækifæri til að kynnast fjölbreyttum störfum og starfsvettvangi í samfélaginu.

HeimaHöfn er verkefni á vegum Nýheima þekkingarseturs sem miðar að því að efla tengsl ungs fólks við sitt nærumhverfi og auka þekkingu þeirra á þeim tækifærum sem standa þeim til boða.

Markmið atvinnukynninganna er að gefa nemendum innsýn í störf sem ekki er auðvelt að heimsækja í hefðbundnum starfskynningum í 10. bekk. Með því fá nemendur tækifæri til að kynnast starfsvettvangi sem oft er síður sýnilegur, en getur engu að síður opnað á fjölbreytt tækifæri í framtíðinni. Að þessu sinni fengu nemendur kynningu á ýmsum störfum, meðal annars frá dýralækni, ljósmóður, lögfræðingi og fasteignasala, bókara, tækniteiknara auk þess sem farið var yfir hvernig það er að starfa í bæjarstjórn.

Viðburðurinn gekk afar vel og nemendur sýndu áhuga á efninu, fylgdust vel með og tóku virkan þátt. Kynningarnar voru fjölbreyttar og skemmtilegar og í lokin var haldið Kahoot þar sem nemendur gátu spreytt sig á spurningum úr kynningunum, sem vakti mikla lukku.

Nemendur fóru södd og sæl út í daginn, bæði af matnum og nýrri þekkingu, með aukna innsýn í möguleika framtíðarinnar.