Ómetanlegt að geta skroppið heim
Vorið 2017 útskrifaðist Elín Ása úr FAS og hóf í kjölfarið nám við Háskóla Íslands. Þaðan lauk hún BS-námi í stærðfræði og stærðfræðimenntun og bætti svo við sig MT-gráðu í menntun framhaldsskólakennara. Hún er nú búsett á Egilsstöðum ásamt manni sínum og ársgömlum syni. Tengslin heim eru þó sterk: “Ég bý ekki lengur þar, en Hornafjörður er enn stór hluti af því hver ég er” segir Elín Ása.
Afleysingastaða leiddi til flutninga austur á Hérað
Elín Ása var enn í námi þegar henni bauðst afleysingastaða við Menntaskólann á Egilsstöðum. Skólinn bauð íbúðarhúsnæði til leigu sem auðveldaði ákvörðun um flutninga.
“Við ákváðum að prófa að flytja austur þótt við þekktum þar nánast engan og hefðum lítið bakland. Til að byrja með ætluðum við bara að búa hér í eitt ár, sem varð síðan að tveimur og áður en við vissum af voru árin orðin rúmlega fimm. Fólkið í kringum okkur tók vel á móti okkur og studdi okkur við að finna okkar stað í samfélaginu. Smám saman höfum við því byggt okkur upp gott líf á Egilsstöðum.”
Kennaranáminu lauk Elín Ása í fjarnámi, samhliða starfi sínu sem stærðfræðikennari.
Stærðfræðikennslan fjölbreytt og gefandi
Elín Ása hefur fengið tækifæri til að kenna flesta stærðfræðiáfanga sem Menntaskólinn á Egilsstöðum býður upp á, allt frá grunnáföngum í algebru til sérhæfðari áfanga í stærðfræðigreiningu og tölfræði.
“Þessi fjölbreytni hentar mér mjög vel. Engar tvær annir eru alveg eins og í starfinu felast stöðugt nýjar áskoranir og tækifæri til að læra og þróast. Mér finnst líka gefandi að fá að kynnast nemendum og fylgjast með þeim öðlast aukið sjálfstraust í námi. Mér líður mjög vel í starfi og ég er gríðarlega heppin með samstarfsfólk og yfirmenn.”
Í tengslum við kennsluna í ME verður Elínu Ásu gjarnan hugsað til námsáranna í FAS.
“Skólarnir eru líkir að mörgu leyti, ekki síst vegna nálægðarinnar á milli nemenda og kennara. Ég hugsa því oft hlýlega til þeirra frábæru kennara og fyrirmynda sem ég átti í FAS og sé betur með hverju árinu hversu mikil áhrif þau höfðu á mig. Ég held að sú reynsla hafi meðal annars mótað mig sem kennara og haft áhrif á hvernig ég vil sjálf mæta nemendum mínum.”
Tengslin við Hornafjörð mikilvæg
Elín Ása segir uppvaxtarárin á Höfn hafa mótað sig á margan hátt. Hún hafi snemma lært að meta náin tengsl við fjölskylduna og nærsamfélagið.
“Ég ólst upp með ömmu og afa hinum megin við götuna og samveran með þeim er mér sérstaklega dýrmæt. Þau ólust upp á Mýrum og í Suðursveit og þegar ég var barn fór ég mikið með þeim um sveitirnar, í fjallgöngur, berjamó og steinaleit. Þannig urðu tengslin við náttúruna og söguna á svæðinu snemma hluti af mér. Ég er enn mikið náttúrubarn og sæki bæði gleði og ró í útiveru.”
Nándin í samfélaginu hafði mikil áhrif á Elínu Ásu. Að alast upp í litlu samfélagi telur hún hafa kennt sér að skilja mikilvægi þess að fólk líti eftir hvert öðru og leggi sitt af mörkum.
“Veganestið sem ég tek með mér frá Hornafirði felst ekki síst í sterkri tilfinningu fyrir samfélagi, umhyggju fyrir fólkinu í kringum mig og djúpum tengslum við náttúruna.”
Reglulega á heimaslóðum
Að mati Elínar Ásu er mikill kostur hversu auðvelt er að ferðast á milli Hafnar og Egilsstaða. Fjölskyldan fer reglulega heim í Hornafjörð og viðheldur nánum tengslum við ættingjana þar. Að þessu leyti hentar þeim betur að búa á Héraði en á höfuðborgarsvæðinu.
“Mér finnst ómetanlegt hversu stutt er á milli Egilsstaða og Hornafjarðar og hversu auðvelt er að skreppa heim um helgar eða dvelja þar lengur. Þegar ég kem heim skiptir mig mestu máli að verja tíma með fjölskyldunni og fólkinu mínu. Það er fyrst og fremst fólkið sem heldur tengslunum við staðinn lifandi.”
Til viðbótar við hefðbundnar fjölskylduferðir í heimahagana hefur Elín Ása einnig ferðast um svæðið með samstarfsfólki sínu.
“Í vinnunni erum við nokkur sem höfum búið á Höfn og tölum gjarnan um staðinn og árin okkar þar. Mér finnst gaman að segja samstarfsfólki mínu frá lífinu í Hornafirði og á síðustu árum hef ég skipulagt ferðir bæði á Höfn og í Lónið fyrir starfsmannafélag skólans. Ferðirnar hafa vakið mikla lukku og mér hefur þótt sérstaklega ánægjulegt að fá að kynna svæðið fyrir öðrum.”
