Að leggja sitt af mörkum – heima og að heiman
Brandur Ingi er fæddur og uppalinn á Höfn. Eftir grunnskólann stundaði hann nám í FAS og vann samhliða náminu. Árið 2020 flutti Brandur Ingi til Reykjavíkur til að vinna á hóteli og læra hótelstjórnun en lauk náminu svo í Sviss. Í dag er Brandur Ingi búsettur í London þar sem hann starfar í fjármáladeild hótelkeðju.
Kynntist atvinnulífinu snemma
Brandur Ingi byrjaði snemma að vinna í eldhúsum nokkurra veitingastaða bæjarins. Hann segist þakklátur fyrir að hafa ungur fengið að taka þátt í atvinnulífinu, það hafi verið mjög lærdómsríkt. Hann hefur einnig kynnst fyrirtækjarekstri í gegnum foreldra sína en þau hafa rekið Martölvuna um árabil.
„Þó svo að ég komi ekki beint að rekstrinum finnst mér alltaf eins og ég sé hluti af litla fyrirtækinu.“
Núverandi vinnustaður Brands Inga er ein fremsta lúxushótelkeðja heims.
„Ég vinn í fjármáladeild hótelkeðjunnar Four Seasons og hef starfað fyrir tvö af þremur hótelum í Bretlandi. Fjármálavinnan sem fer fram á svona hótelum er fremur víðtæk og er allt frá venjulegu rekstrarbókhaldi yfir í greiningar á öllum hliðum rekstursins. Four Seasons er ein af fremstu lúxushótelkeðjum heims, staðlarnir eru gífurlega háir. Það er því mikill skóli að vinna innan svona fyrirtækis og veitir manni án efa einstaka reynslu.“
Framtakssemi og ábyrgð í smærri samfélögum
Uppvaxtarárin á Höfn segir Brandur Ingi öðru fremur hafa einkennst af miklu frelsi og öryggi sem hafi veitt „tækifæri til að prófa ýmislegt án þess að hafa áhyggjur af því að mistakast“.
„Daglegt líf á Höfn kennir manni margt. Fólk veigrar sér ekki við að smíða pall, mála hús eða taka heilu byggingarnar í gegn með minniháttar aðkomu iðnaðarmanna. Þetta „get- ætla-skal“ hugarfar er gífurlega verðmætt að taka með sér inn í lífið.“
Við þetta bætir Brandur Ingi að hann telji að í smærri samfélögum finni hver og einn fyrir meiri ábyrgð gagnvart sveitungum sínum, eins og hann orðar það.
„Og ég held að þó maður flytji annað fari þessi ábyrgðartilfinning ekki, en maður kemst fljótt að því að hún er ekki endilega til staðar annars staðar.“
Gaman að sjá heimahagana þróast
Eftir 20 ára búsetu á Höfn segist Brandur Ingi hafa órjúfanleg tengsl við svæðið. Fjölskylda hans býr hér enn ásamt mörgum vinum svo hann reynir að komast oft heim.
„Mér finnst alltaf gaman að koma og byrja alltaf á að keyra um bæinn og skoða hvað hefur breyst, það er alltaf gaman að sjá uppbygginguna í bænum. Síðan reyni ég mitt besta við að hitta vini og kunningja. Ég reyni að njóta útiveru eins og ég get, en það sem er hvað best er kyrrðin sem er svo einstök á Höfn.“
Til viðbótar við sterk tengsl við fjölskyldu, vini og náttúru svæðisins varpar Brandur Ingi einnig ljósi á sérstaka tengingu við samfélagið.
„Manni er líka annt um samfélagið. Því lengur sem maður er í burtu sér maður að samfélagið heldur áfram að þróast. Mann langar að leggja sitt að mörkum til þess að sú þróun haldi áfram en ekki síst að einn daginn geti maður komið aftur að samfélagi sem sé á betri stað en þegar maður fór.“
Brandur Ingi segist oft hafa leitt hugann að því hvernig brottfluttir geti lagt sitt af mörkum til svæðisins. Hann telur HeimaHöfn geta lagt til vettvang uppbyggilegrar umræðu, meðal annars samtals ungmenna á svæðinu og þeirra sem hafa flutt burt.
„Þá held ég að vettvangur eins og HeimaHöfn sé mikilvægur til að efla þau ungmenni sem búa í sveitafélaginu til þess að fá aðgang að tengslum bæði við atvinnulíf staðarins og líka við brottflutta íbúa sem skilja bæði takmörk og forskot þess að búa á svæðinu. Þá getur fólk eins og ég og aðrir vonandi hjálpað ungmennum að fóta sig fyrr og einnig rækta tengsl við þá sem einn daginn gætu komið til baka. Ég held að verkefni eins og þetta hafi ávinning fyrir alla sem taka þátt og virkilega góð áhrif til framtíðar.“
